Viðskiptaskilmálar.

1. Inngangur

Hér á eftir fara almennir viðskiptaskilmálar Garnes Data ehf (hér eftir nefnt Garnes).
Garnes áskilur sér einhliða rétt til að breyta viðskiptaskilmálum þessum og munu breytingar verða tilkynntar með 30 daga fyrirvara á heimasíðu Garnes, www.Garnes.is. Allir samningar, sem gengið verður frá eftir þá dagsetningu, falla undir hina nýju skilmála.
 Viðskiptaskilmálar þessir taka gildi 01.01.2020. Skilgreiningar eru í lok skilmála.

 

2. Gildissvið

Undir viðskiptaskilmála þessa falla öll viðskipti, tilboð og samningar Garnes við viðskiptavini um kaup á vöru og þjónustu, hvort sem þau eru skrifleg eða ekki. Viðskiptaskilmálarnir eru ófrávíkjanlegir og gilda um öll þau atriði sem fram í þeim koma, nema sérstaklega sé um annað samið með skriflegum hætti.

Allar breytingar á samningsskjölum vera skriflegar og undirritaðar af báðum aðilum.
 Um kaup einstaklinga utan atvinnurekstrar á hvers kyns vöru og/eða þjónustu gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um þjónustukaup nr. 42/2000, ef ákvæði þeirra laga eru slíkum aðilum hagstæðari en þessir viðskiptaskilmálar kveða á um.
 Um kaup lögaðila (fyrirtæki og einstaklingar í atvinnustarfsemi) gilda lög um lausafjárkaup nr. 50/2000, þar sem ákvæðum þessara skilmála, samningi eða viðskiptavenju milli aðila sleppir.

 

3. Þjónustutími

Almennur þjónustutími er virka daga kl 8-17 nema um annað sé samið (t.d. með samningi um þjónustutíma 24/7).
 Þjónustunúmerið okkar 5372500 er opið frá klukkan 8-17.
 Öllum beiðnum og tölvupóstum sem sendar eru á netföng innan Garnes er svarað á dagvinnutíma.
 Fyrir vinnu utan auglýsts þjónustutíma gildir sérstakt yfirvinnugjald eða stórhátíðargjald eftir því sem við á.

Þó ekki hafi verið samið sérstaklega um 24/7 þjónustu við Garnes er hægt að óska eftir sérstakri neyðarþjónustu gegn tímagjaldi og sérstöku útkallsgjaldi samkvæmt gjaldskrá.

 

4. Tilboð og samningar

Samningur telst kominn á þegar samningur, samningsviðauki eða eftir atvikum tilboð hefur verið undirritað(ur) eða samþykkt(ur) skriflega af báðum aðilum. Samþykki í tölvupósti telst fullnægjandi.

 

4.1. Gildistími tilboðs

Garnes ákveður gildistíma tilboðs og telst ekki bundið af tilboði hafi það ekki verið samþykkt af viðskiptavini með formlegum hætti (þar á meðal með samþykki í tölvupósti) innan gildistíma þess. Ef engin dagsetning kemur fram í tilboðinu gildir það í 2 vikur frá því sölumaður sendir það frá sér.
 Um tilboð í samninga gildir sá fyrirvari að þau geta breyst eftir úttekt sérfræðinga.

 

4.2. Gildistími samninga

Ef ekki er kveðið á um gildistíma samninga í samningi milli aðila, skal samningur gilda í 3 ár.

 

4.3. Uppsögn samninga

Uppsagnarfrestur samnings eru 3 mánuðir nema um annað sé samið. Uppsögn tekur gildi um mánaðarmót eftir að hún berst og byrjar þá uppsagnarfrestur að líða. Uppsögn skal vera skrifleg og afhent með sannanlegum hætti. Uppsögn í tölvupósti telst gild ef pósturinn berst sannarlega til Garnes, t.d. með að staðfestingu á móttöku.

 

4.4. Misræmi í skilmálum

Sé misræmi í texta almennra viðskiptaskilmála og texta samnings eða samningsviðauka gildir texti samnings eða samningsviðauka.

 

5. Afhending

Garnes leitast við að afhenda búnað og þjónustu á umbeðnum eða umsömdum tímum. Við afhendingu búnaðar flyst áhætta á búnaði yfir til viðskiptavinar, en Garnes ber áhættu þangað til. Búnaður telst afhentur um leið og viðskiptavinur hefur veitt honum viðtöku og/eða kvittað fyrir móttöku.

6. Endurgjald og greiðsluskilmálar

 

6.1. Gjaldtaka

Greiðsla fyrir vöru og/eða þjónustu skal fara eftir gildandi gjaldskrá fyrir hverja vöru/og eða þjónustu Garnes á hverjum tíma, nema um annað sé samið sérstaklega.

 

6.2. Reikningsviðskipti

Garnes getur hafnað hverjum sem er um reikningsviðskipti.
 Þeir viðskiptavinir sem eru í reikningsviðskiptum fá sendan reikning fyrir seldum búnaði og/eða veittri þjónustu.
 Reikningar frá Garnes skulu vera sundurliðaðir og eftir atvikum studdir fylgiskjölum til þess að unnt sé að sannreyna þá.
 Viðskiptavinir bera fulla ábyrgð á því að greiðslur fyrir búnað og þjónustu berist Garnes á réttum tíma.
 Gjalddagi reiknings fer eftir greiðsluskilmálum viðskiptavinar, ef ekki er um annað samið er gjalddagi einum degi eftir útgáfu reiknings og eindagi fimmtán dögum eftir gjalddaga.
 Dráttarvextir reiknast á reikninga sem greiddir eru eftir eindaga í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá eindaga til greiðsludags. Hafi athugasemdir viðskiptavinar borist eftir eindaga og atvik réttlæta með ótvíræðum hætti, að athugasemdir bárust ekki í tæka tíð, mun Garnes taka afstöðu til þeirra athugasemda.
 Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast Garnes án tafar og eigi síðar en á eindaga.
 Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings er viðskiptamanni einungis heimilt að bíða með greiðslu á þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um.
Garnes sendir rafræna reikninga til fyrirtækja í reikningsviðskiptum nema óskað sér sérstaklega eftir öðru.

Seðilgjöld og umsýslukostnaður fer eftir verðskrá hverju sinni.
 Vara er eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt. Eignarréttur seljanda helst þar til fullnaðargreiðsla hefur borist þrátt fyrir að um reikningsviðskipti eða annað lánaform sé að ræða.

 

6.3. Ferðakostnaður og útlagður kostnaður

Sérstakt akstursgjald er gjaldfært fyrir akstur innan höfuðborgarsvæðisins. Sé viðskiptavinur hins vegar staðsettur utan höfuðborgarsvæðisins, skal hann greiða Garnes kílómetragjald og uppihald samkvæmt gjaldskrá Garnes, nema um annað sé samið. Viðskiptavinur skal að auki greiða allan útlagðan kostnað sem Garnes hefur stofnað til í þágu viðskiptavinar.

 

6.4. Útköll og aukaverk

Lágmarksgjald vegna útkalls á dagvinnutíma er 2 klst. og 4 klst. fyrir útköll utan dagvinnutíma samkvæmt verðskrá nema um annað sé sérstaklega samið. Dagvinnutími er skilgreindur sem 8-17 virka daga. Ef ekki hefur verið samið sérstaklega um 24/7 þjónustu við Garnes, þá er hægt að óska eftir sérstakri neyðarþjónustu samkvæmt verðskrá og sérstöku útkallsgjaldi. Aukaverk er öll þjónusta sem er unnin eru í þágu viðskiptavinar en fellur ekki innan samnings. Þau eru reikningsfærð sérstaklega samkvæmt tímagjaldi en leitast verður við að afla samþykkis viðskiptavinar áður en vinna er innt af hendi. Ef nauðsynlegt er skal Garnes vera heimilt að grípa til aðgerða til varnar tjóni fyrir viðskiptavin án samþykkis hans og skal farið með slíkar aðgerðir sem aukaverk.

 

6.5. Hvíldartími

Ákveðnar reglur gilda til að tryggja 8 klst samfelldan hvíldartíma. Þegar starfsmenn Garnes eru kallaðir út til vinnu / eru að vinna á tímabilinu 23-07 þá gildir eftirfarandi:a) Yfirvinna er skráð skv unnum tímum, en þó aldrei skemur en lágmarksútkall sem er 4 klst.
 b) Ef starfsmaður nær ekki 8 klst samfelldri hvíld þá skráir hann hvíldartíma á viðskiptavin það sem uppá vantar (dagvinna næsta dag). Engu skiptir hvort um fyrirfram ákveðna vinnu eða útkall er að ræða.

 

6.6. Bakvaktir

Ef starfsmenn Garnes eru á bakvakt fyrir viðskiptavin þá greiðist sá tími samkvæmt gildandi verðskrá hverju sinni nema um annað sé samið sérstaklega.

 

6.7. Breytingar á gjaldskrá og umsömdum gjöldum

Garnes áskilur sér einhliða rétt til að endurskoða þjónustugjöld, uppfærslugjöld og leyfisgjöld eftir þörfum hverju sinni, nema um annað sé samið á milli aðila. Slíkar breytingar geta haft áhrif á mánaðarleg gjöld samnings. Almenn gjaldskrá vegna vinnu sérfræðinga er endurskoðuð um hver áramót. Leitast er við að birta samningsbundnum viðskiptavinum nýja verðskrá á https://www.garnes.is 30 dögum áður en hún á að taka gildi, en Garnes er þó ekki bundið af því.

 

7. Sala á þjónustu

 

7.1. Ósk um þjónustu

Garnes getur einungis tryggt viðbragð ef ósk um þjónustu berst inn á eina af þessum 3 leiðum.

 

Þjónustubeiðnir

Þjónustubeiðnir skal senda á hjalp@garnes.is þar sem fram kemur:

· hvert verkefnið er

· tengiliðaupplýsingar (fyrirtæki, nafn, símanúmer)

· raðnúmer á biluðum búnaði ef það á við.

· Athugið að beiðnir sem eru sendar á þetta netfang eru afgreiddar á skrifstofutíma.

 

Símtal

Viðskiptavinur getir hringt inn í síma 5372500 á dagvinnutíma. Þar er erindið skráð og gerð verkbeiðni. Utan dagvinnutíma er hægt að kalla út bakvakt í þessu númeri með einföldum hætti.

Athugið að ef Garnes þarf að bregðast mjög fljótt við þá er þetta sú leið sem viðskiptavinur þarf að velja.

 

Þjónustugátt

Garnes býður viðskiptavinum sínum upp á þjónustugátt, www.Garnesdata.is þar sem m.a. er hægt að gera verkbeiðnir.
Athugið að beiðnir sem eru búnar til í þjónustugátt eru afgreiddar á skrifstofutíma.

 

Þjónustusamningar

Garnes býður upp á nokkrar tegundir þjónustusamninga. Ákvæði þessara samninga innihalda markmið um ákveðið þjónustustig en ekki loforð, nema slíkt sé sérstaklega tekið fram í samningnum. Viðbragð í samningum er skilgreint sem sá tími þar sem beiðni er sannarlega lögð fram og þar til Garnes hefur hafið úrlausn. Hvor samningsaðili um sig ber ábyrgð á störfum starfsmanna sinna, er koma að framkvæmd þjónustusamninga og þjónustustigssamninga. Garnes getur að eigin vali ráðstafað starfsmönnum sínum til að veita þjónustu samkvæmt samningnum eða fengið til þess undirverktaka eða starfsmenn þriðja aðila.

 

​8. Hýsingarþjónusta

Samningur um hýsingu er gerður á milli Garnes og viðskiptamanns um hýsingu á vélbúnaði, rafrænum gögnum og eftir atvikum rekstur á upplýsingatæknikerfum. Öll þjónusta sem tengist hýsingu í gagnaverum Garnes skal álitin veitt hér á landi, nema um annað sé samið sérstaklega